Banaslys í meðallandi

Bana­slys varð á sveita­bæ í Meðallandi í Vest­ur-Skafta­fells­sýslu í gær þegar dreng­ur á þriðja ári féll út úr drátt­ar­vél­ og lenti und­ir mal­ar­vagni sem hún dró.


Lög­regla og sjúkra­lið frá Kirkju­bæj­arklaustri og Vík var þegar kallað á vett­vang en end­ur­lífg­un­ar­tilraun­ir báru ekki ár­ang­ur og var dreng­ur­inn úr­sk­urðaður lát­inn á vett­vangi.


Rann­sókn­ar­deild lög­regl­unn­ar á Suður­landi vinn­ur að rann­sókn slyss­ins.