Alvarlegt umferðarslys varð á Suðurlandsvegi, vestan við Kirkjubæjarklaustur á tíunda tímanum í morgun.
Tveir erlendir ferðamenn voru þar á ferð og virðist sem svo að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum í slæmri færð með þeim afleiðingum að hann valt út fyrir veg. Annar þeirra sem í bílnum voru var úrskurðaður látinn á vettvangi, en hinn er slasaðist lítillega, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.
Að því er fram kemur á mbl.is er lögreglan á Suðurlandi að vinna á vettvangi og er rannsókn málsins á frumstigi