Banaslys á haukadalsflugvelli

Karlmaður lést þegar flugvél hlekktist á í flugtaki á Haukadalsvelli laust eftir klukkan tvö í dag. Þetta kemur fram á vef Ríkisútvarpsins.

Á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi segir: Tilkynning barst klukkan 14:23 um að flugvél hefði hlekkst á í flugtaki á Haukadalsflugvelli á Rangárvöllum. Flugmaðurinn var einn í flugvélinni.
Hann var íslenskur og á sextugsaldri. Var hann úrskurðaður látinn á vettvangi.

Unnið er að rannsókn á tildrögum slyssins.