Í gærmorgun klukkan 10:55 barst neyðarlínu tilkynning um að alvarlegt umferðarslys hefði átti sér stað á Borgarfjarðarbraut. Þar varð árekstur tveggja ökutækja með þeim afleiðingum að tvær manneskjur slösuðust alvarlega.
Lögregla, sjúkralið ásamt lækni komu á vettvang. Borgarfjarðarbraut var lokuð á meðan rannsókn á tildrögum slyssins stóðu yfir.
Erlendur ferðamaður var farþegi í annarri bifreiðinni og hefur hann verið úrskurðaður látinn.