Banamanni var synjað um réttindi

Í október árið 1980 greindu íslenskir fjölmiðlar frá því að Hæstiréttur hefði staðfest dóm Sakadóms í máli Þorvalds Ara Arasonar lögfræðings en hann sóttist eftir lögmannsréttindum eftir afplánun dóms eftir að hann myrti fyrrverandi eiginkonu sína. Lesa má frásögn af þessu í Tímanum hér.

Ákæruvaldið hafði kært úrskurð Sakadóms um að Þorvaldur Ari fengi aftur málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi og Hæstarétti. Í dómsorði sagði „Hinn kærði úrskurður á að vera óraskaður að því er varðar niðurfellingu sviptingar réttinda til málflutnings fyrir héraðsdómi og Hæstarétti.“

13 árum fyrr, eða árið 1967 segir í frásögn Vísis af morðinu að „kunnur lögfræðingur“ hafi játað morð á konunni en nágrannar kölluðu til lögreglu um miðja nótt vegna hávaða og fann lögregla konuna í baðkari. „Var líkið með mörg svöðusár á andliti, brjósti og kvið auk annarra staða,“ segir í fréttinni.

Viðstaddar í íbúðinni voru, þegar morðið var framið, frænka Þorvalds Ara utan af landi, rúmlega tvítug dóttir hennar og 6 ára dóttir lögmannsins og fyrrverandi eiginkonu hans. Þorvaldur Ari hafði komið að íverustað fyrrverandi eiginkonu, Kvisthaga 25 um kl. 8 um morguninn, en fyrrv. eiginkona hans vildi ekki hleypa honum inn í íbúðina. „Braut Þorvaldur Ari þá rúðu í útihurðinni eftir nokkurt þóf og gat teygt höndina að smekklásnum og opnað hurðina innan frá. Lenti hann í harkalegri orðasennu við fyrrverandi eiginkonu sína, sem endaði með því að hann dró upp 25—30 cm. langa eldhússveðju, sem talið er að hann hafi komið með á sér, þó að ekki sé það fullsannað. Lagði hann til konunnar oftsinnis með sveðjunni og elti hana, þar til hún hneig niður við símaborð í innri forstofu. Bar hann síðan Hjördísi inn í baðherbergið og lagði hana þar í baðkerið. — Frænka lögmannsins reyndi að ganga í milli, en var stungin við það í fótinn,“ segir í frétt Vísis.

Áratugir hafa liðið frá þessum atburði og verður ekki reynt að leggja mat á hvort mál Þorvaldar Ara og ein umtalaðasta frétt samtímans, mál Atla Helgasonar, séu samanburðarhæf. Á samfélagsmiðlum hefur þetta mál verið rifjað upp í samanburði við þá kröfu Atla sem myrti mann árið 2000 og hefur afplánað refsingu, að fá aftur málflutningsréttindi. Hann fékk fyrir áramót uppreist æru eins og Kastljós skýrði fyrst fjölmiðla frá. Samkvæmt heimildum Hringbrautar fékk Þorvaldur Ari réttindi síðar.

Sérfræðingur í refsirétti segir alla geta fengið uppreist æru að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Atli hefur lagt inn beiðni til Héraðsdóms Reykjavíkur um að réttindasvipting hans verði felld úr gildi svo hann geti fengið málflutningsréttindi sín að nýju.

Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi formaður Lögmannafélags Íslands og fyrrum hæstaréttardómari, segir í samtali við Rúv að ekki sé annað hægt en að veita Atla aftur lögmannsréttindin sem hann var sviptur í kjölfar manndrápsins. Ekki megi mismuna mönnum eftir því hvað þeir hafi brotið af sér.