Baltasar leikstýrir mark wahlberg í þriðja sinn

Baltasar Kormákur mun leikstýra Arthur the King, sannsögulegri mynd byggðri á sannri sögu eftir Mikael Lindnord. Mark Wahlberg mun leika aðalhlutverkið og munu þeir kumpánar því sameina krafta sína í þriðja sinn, en áður hafði Wahlberg leikið aðalhlutverkið í bæði Contraband og 2 Guns, sem Baltasar leikstýrði.

Lindnord skrifaði hina sannsögulegu bók Arthur: The Dog Who Crossed the Jungle to Find a Home, sem kom út árið 2017 og segir frá særðum flækingshundi sem Lindnord tók að sér þegar hann leiddi lið sitt í Adventure Racing World Championship keppninni árið 2014. Hundinn Arthur hitti Lindnord á meðan lið hans fór í gegnum þann hluta Amazon frumskógarins sem tilheyrir Ekvador. Ákvað Lindnord að ættleiða Arthur eftir að hundurinn fylgdi liðinu í gegnum hinar ýmsu ógöngur í frumskóginum.

Wahlberg mun leika Lindnord í myndinni og áætlað er að tökur hefjist fyrri hluta næsta árs.

Sagði sig frá verkefni með Idris Elba

Síðasta leikstjórnarverkefni Baltasars voru tveir þættir af annarri seríu Ófærðar, sem voru frumsýndir um síðustu jól á RÚV. Til stóð að hann myndi leikstýra Idris Elba í Deeper, yfirskilvitlegri spennumynd sem Max Landis skrifaði handritið að, en Baltasar sagði sig frá verkefninu í sumar.

Landis hefur verið sakaður um líkamlegt og andlegt ofbeldi í garð fjölda kvenna og því ákvað Baltasar að segja sig frá myndinni. Alls hafa átta konur stigið fram og sakað Landis um ofbeldi. Gerð myndarinnar er því í óvissu, en upphaflega var gert ráð fyrir að hefja tökur hér á landi í maí síðastliðnum.