Forsvarsmenn flugfélagsins Ernis áttu fund með Michelle Ballarin, bandaríska kaupsýslukonunni sem keypti þrotabúa WOW, þar sem hún ræddi hugmynd sína um að kaupa flugfélagið. Nýja flugfélagi hefur ekki enn þá hafið miðasölu en Ballarin sagði á blaðamannafundi að áætlað væri að flug myndi hefjast í október.
„Við hlustuðum á hvað var þarna á ferðinni og hún bar ákveðnar hugmyndir og borð en okkur fannst það ekki henta okkur að fara í frekari viðræður á þessum grundvelli,“ sagði Hörður Guðmundsson, forstjóri Ernis í samtali við RÚV. Ballarin er sögð hafa áhuga á flugrekstrarleyfi Ernir, en það leyfi gildir fyrir flug um alla Evrópu.
Nýja flugfélag Ballarin hefur eingöngu flugleyfi til að fljúga á milli Bandaríkjanna og Íslands. Til þess að getað flogið á milli Íslands og Evrópu þarf flugfélag Ballarins að fá sér íslenskt flugrekstrarleyfi, sem það hefur ekki gert enn. Hörður segir að ekkert formlegt kauptilboð hafi komið frá félagi Ballarin um kaup á flugrekstrarleyfi flugfélagsins Ernis.
„Nei, það var ekkert slíkt enda hennar hugmyndir allt aðrar en okkar þannig að það fór ekki á það stig. Við fundum fljótt að þetta var ekki það sem hentaði okkar fyrirtæki eða áformum,“ sagði Hörður.