Gert er ráð fyrir snörpum vindhviðum við fjöll á sunnan- og vestanverðu landinu í dag og ættu ökumenn að gjalda varhug við sviptivindum í grennd við brattar fjallshlíðar.
Það fór eins og mörg fyrri árin að fresta varð fjömörgum þrettándabrennum í gærkvöld á síðasta degi jóla, en frestunin er að verða jafn hefðbundin og jólahaldið sjálft á byggðum bólum Íslands.
Austan hvassviðrið í dag tekur í mann og staur ef að líkum lætur. Vindhraðinn fer víða og örugglega upp í 25 metra á sekúndu sem ýfir vissulega nös.
Það verður rigning eða slydda sunnan- og austantil, en slydda eða snjókoma norðaustanlands. Annars má ætla að verði úrkomulítið. Hiti verður yfirleitt um eða yfir frostmarki, mildast þó sunnantil. Heldur fer hann svo kólnandi þegar líður á daginn með éljum um landið austanvert, en þurrt að mestu vestanlands eftir hádegi.
Hann snýr sér í norðaustanátt um helgina með éljagangi á stöku stað nyrðra og eystra en léttum skýjum og jafnvel heiðríkju suðvestanlands í vægu frosti.