Búast má við hvassviðri eða stormi við suður- og suðvesturströndina og á miðhálendinu eftir hádegi í dag og fara vindhviður að líkindum upp 35 m/s við fjöll á þeim slóðum sem jafngildur því að vindurinn fari yfir á 120 kílómetra hraða á klukkustund.
Veðurstofan varar við þessum hvelli og segir í tilkynningu sinni að ekkert ferðaveður sé því fyrir bíla með aftanívagna og einnig ráðleggur hún fólki að huga að tjöldum og lausamunum.
Um og upp úr hádegi verður komið hvassviðri og síðar jafnvel stormur suðvestanlands. Reiknað með að veðurhæð verði hvað mest á Suðurlandi og á Suðurnesjum síðdegis. Spáð er hviðum um og yfir 35 m/s undir Eyjafjöllum á Kjalarnesi og ef til vill víðar frá um kl. 14:00 og til 19:00, en svo lægir mikið í kvöld.
Veðurfræðingar segja að lægðin sem valdi þessum hvelli sé óvanalega kröpp miðað við árstíma - og vel megi kalla hana fyrstu haustlægðina.