Nú er beðið eftir grænu ljósi frá deiliskipulagi um nýjan kirkjugarð fyrir Reykjavík, enda Gufuneskirkjugarður að fyllast. Hann telst þó ekki gamall garður, því Gufuneskirkjugarður var opnaður árið 1980 og þar hafa nú þegar verið jarðsettir fleiri en í Fossvogskirkjugarði.
Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarðanna, segir þó að nú þrengi að, eins og fram kom í þættinum Ég bara spyr sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld klukkan 21:30. Þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar, en þar er rætt um allt sem viðkemur jarðaförum og bálförum, en mikil aukning hefur orðið á bálförum síðustu árin og nemur fjölgunin tugum prósenta. Aukningin er mun meiri á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni og gera spár ráð fyrir að sú aukning muni halda áfram næstu árin.
Frímann Andrésson, útfarastjóri, er einnig gestur í þættinum. Hann segir að í þeirra þjónustu komi stundum upp viðkvæm mál þar sem fjölskyldumeðlimir eru ekki sammála um einstaka liði í útförum eða erfisdrykkju. Þetta séu erfiðir tímar og fjölskyldur misbrotnar eftir andlát ástvina. Þó sé reynslan sú að oftast nær nái fjölskyldur sáttum áður en útför fer fram.
Í þeim tilfellum, sem fólk er ekki kristinnar trúar, er gert ráð fyrir jarðarförum á ákveðnum svæðum í kirkjugörðum. Um ýmiss praktísk útfaramál er spurt um í þættinum, enda hafa áhorfendur verið iðnir við að spyrja um þetta málefni í gegnum upplýsingaveituna Spyr.is.