Baldvin tryggvason er látinn

Baldvin Tryggvason, fyrrverandi sparisjóðsstjóri SPRON, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ að kvöldi 29. júlí. Hann var fæddur 12. febrúar 1926 í Ólafsfirði. Baldvin var mikill áhugamaður um stjórnmál og gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Greint er frá andláti Baldvins í Morgunblaðinu.

\"\"Frá 1956 til 1960 var Baldvin framkvæmdastjóri fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Hann var forstjóri Almenna bókafélagsins 1960 -1976 þegar hann var ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis. Þeim starfa gegndi hann til 1996.

Baldvin var áhugasamur um stjórnmál og gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann var formaður Garðars í Ólafsfirði 1942 -1948, í stjórn SUS 1949-1951 og 1957-1959, í stjórn Heimdallar 1956 -1957 og formaður 1958 - 1959. Hann var formaður skipulagsnefndar Sjálfstæðisflokksins 1970 - 1977 og í miðstjórn flokksins á sama tíma. Hann var varaborgarfulltrúi flokksins í Reykjavík 1962 -1966 og 1970 -1974.

Gegndi hann þá ýmsum störfum fyrir borgarstjórn, sat einnig í menntamálaráði og í stjórn LÍN um tíma. Hann sat í leikhúsráði LR frá 1963 til 1994 og var um skeið formaður framkvæmdanefndar Listahátíðar Reykjavíkur. Þá sat hann í orðunefnd 1988-1996.

Hann hlaut ýmsar viðurkenningar, m.a. stórriddarakross Fálkaorðunnar 1990 og var kjörinn heiðursfélagi LR 1993.