Fyrrverandi stjórnarmaður hjá WOW, Ben Baldanza, segir að helst hafi fimm áskoranir sem fyrirtækið mætti dregið það í gjaldþrot. Hann segir að á þeim tíma sem hann hafi setið í stjórn, frá 2016 til 2018, hafi hann kynnst Skúla Mogensen vel og viðskiptamódeli WOW.
Ben Baldanza er hagfræðingur og fyrrverandi formaður og framkvæmdastjóri Spirit Airlines. Hann var framkvæmdastjóri félagsins þegar því var breytt í lággjaldaflugfélag. Hann hefur einnig unnið fyrir fjölda annarra flugfélaga.
Baldanza segir í grein sinni að landfræðileg lega Íslands hafi verið mikill kostur fyrir WOW en að það sem helst hafi dregið félagið í þrot hafi verið skortur á aðhaldi við kostnað, að hafa ekki nýtt sér erlent ódýrara vinnuafl, að hafa ekki verið með aðra heimahöfn sem hefði verið hægt að nýta þegar ferðamönnum fækkaði hér á landi, að hafa ekki stjórnað sjóðsstreymi betur og að lokum kaupin á Airbus A330 vélunum.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/markadurinn/baldanza-segir-fimm-astaedur-fyrir-falli-wow/