Bætur hækkað meira en laun

Greiðslur frá  Tryggingastofnun hafa hækkað um 27,2% að raunvirði frá árinu 2010 en laun um 14,4%. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.

Tölurnar eru hafðar eftir Páli Kolbeins, rekstrarhagfræðingi hjá Ríkisskattstjóra en hann vekur einnig athygli á að þeim sem fái bætur frá Tryggingastofnun hafi fjölgað um 8.815 2010-2014 eða tæp 20%. Á sama tíma hafi launafólki fjölgað um 3,8%.

Fram kemur í Morgunblaðinu í morgun að laun hafi hækkað um 6,1% en greiðslur frá Tryggingastofnun um 6,1%