Bætir heldur í verðbólgu

Verðbólga verður nærri markmiði næstu ár.

Morgunkorn Íslandsbanka segir útlit fyrir hóflega verðbólgu hérlendis. Svo lengi sem gengi krónu gefur ekki verulega eftir.

Þá er gert ráð fyrir að gengi krónu verði í stórum dráttum á svipuðum slóðum og það hefur verið að meðaltali síðustu mánuði.

Gert er ráð fyrir að jafnt og þétt dragi úr hækkunartakti íbúðaverðs. Einnig launa eftir því sem líður á.

Verðbólga verður við 2,5% verðbólgumark Seðlabanka Íslands á fyrri hluta næsta árs. En eykst lítillega í kjölfarið og verður 2,8% í árslok 2018.

Árið 2019 er spáð 2,7% verðbólgu að jafnaði.

Það má því segja að miðað við spá Morgunkorns Íslandsbanka verði verðbólga í næsta nágrenni við markmið Seðlabanka Íslands fram til ársloka 2019.

[email protected]