Bærinn verði miklu skemmtilegri!

 

Eygló Harðardótt­ir vel­ferðarráðherra ger­ir staðfast­lega ráð fyr­ir því að rætt verði við Ak­ur­eyri fyrst sveit­ar­fé­laga varðandi viðtöku flótta­manna. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

„Við vilj­um gjarn­an ræða fyrst við Ak­ur­eyri. Það var það sveit­ar­fé­lag sem steig fyrst fram í sum­ar og sýndi ákveðið frum­kvæði í því að taka á móti flótta­mönn­um og við höf­um heyrt það að Ak­ur­eyr­ing­ar séu þegar byrjaðir að und­ir­búa sig,“ hefur mbl.is eftir Eygló.

Logi Már Einarsson, oddviti samfylkingarmanna í bæjarstjórn Akureyrar, segir í fréttaviðtali við Hringbraut að hann fagni ummælum velferðarráðherra:

„Við erum að mörgu leyti ákjósanlegt samfélag til að taka a móti nýjum íbúum. Ég er sannfærður um að þetta mun leiða til þess að samfélagið okkar verður enn skemmtilegra en áður. Ég sé tækifæri í þessu á sama tíma og við þurfum að rækta skyldur okkar gagnvart öðrum jarðarbúum.“