Bændur: vilja flytja út, en ekki inn!

\"Það er fráleitt að á sama tíma og til dæmis sauðfjárbændur hyggjast nýta sér þau tækifæri sem felast í útflutningi á fersku lambakjöti skuli íslensk stjórnvöld ætla að standa í vegi fyrir innflutningi á sambærilegri vöru hér á landi, sem hefur staðist heilbrigðiseftirlit samkvæmt sömu reglum og gilda á Íslandi.\"

Þetta skrifar Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda í tilefni af þeim úrskurði EFTA-dómstólsins að Íslendingar reisi hærri girðingar gegn innflutningi á fersku kjöti en EES-samningurinn leyfir þeim, en lesa má um það efni í frétt Hringbrautar hér á forsíðu vefjarins.

Ólafur bendir á að það séu hagsmunir íslensks matvælaiðnaðar að fá að flytja ferskvöru á markað í öðrum Evrópuríkjum og þá gangi ekki að ætla að hindra innflutning sambærilegrar vöru hér á landi.

\"Innflutningur á fersku kjöti eykur úrval af ferskri gæðavöru og er neytendum til hagsbóta. Það er ekki eftir neinu að bíða með að afnema þetta bann,“ segir Ólafur.