Bændur segja þjóðarréttinn í sókn

Sala á íslensku lambakjöti hefur aukist um sex af hundraði á tímabilinu 1. júlí á síðasta ári til jafnlengdar í ár að því er fram kemur í tilkynningu frá Landssamtökum sauðfjárbænda í dag.

Salan hefur aukist jöfnum skrefum síðustu ár eins og meðfylgjandi graf ber með sér. Sameiginlegt markaðsstarf bænda og afurðarstöðva, stöðugt framboð, aukinn ferðamannastraumur og vakning hjá íslenskum neytendum um gæði og hollustu íslenska lambakjötsins hafa skipt þar sköpum. \"Allt bendir til þess að þjóðarrétturinn lambakjöt sé í sókn,\" segir í tilkynningunni.  

Athygli vekur að afurðaverð til íslenskra sauðfjárbænda er með því allra lægsta í Evrópu eins og fram kemur í tilkynningunni. \"Oft munar tugum prósentna. Franskir bændur fá t.a.m. um 60% hærra verð en þeir íslensku,\" segir í tilkynningunni.