Þorsteinn Pálsson skrifar fína grein á vef Hringbrautar þar sem hann rýnir í stöðuna varðandi samþykki nítján þingmanna til fullgildingar búvörusamningunum. Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði í Þjóðbraut í gærkvöld að Samfylkingin hafi tryggt að hægt sé að taka samningana upp eftir þrjú ár.
Þorsteinn er ekki sannfærður. Hann skrifar: „Samfylkingin segir að ríkisstjórnin hafi lofað að samningarnir væru opnanlegir. Lagatextinn ber það hins vegar ekki með sér. Eftir stendur að Bændasamtökin ráða því ein og sér hvort þau fallast á opnun.“
Ef rétt geta bændur hæglega komið í veg fyrir upptöku samninganna eftir þrjú ár. Það var vegna þess möguleika sem þingmenn Samfylkingarinnar sátu hjá við atkvæðagreiðsluna í Alþingi.