Bændur gagnrýna nýjan búvörusamning

Sigríður Jónsdóttir, sauðfjárbóndi Biskupstungum segir að sauðfjárbændur eigi að fella búvörusamninginn. Hann hafi verið lítið kynntur sauðfjárbændum og lítið hlustað á mótmæli þeirra.
 
Þetta kemur fram í samtali RÚV við Sigríði í morgun, en þar segir hún að samningurinn sé afturför og muni leiða til offramleiðslu. Formaður Félags Sauðfjárbænda vísar fullyrðingum Sigríðar á bug í miðlinum.
 

Samkvæmt nýja samningnum verða beingreiðslur til sauðfjárbænda felldar út á 9 árum. Framleiðslukvóti sauðfjárbænda var tekinn af fyrir 20 árum, en beingreiðsluréttur hefur gengið kaupum og sölum.

Sigríður kveðst ósátt: \"Og nú liggur fyrir samningur sem að aftengir alla framleiðslustjórnun. Það mun leiða af sér offramleiðslu með tilheyrandi vandamálum og ég tel að ef að þessi samningur verður samþykktur þá förum við rakleitt 30 ár aftur í tímann,“ segir Sigríður við RÚV.

Hún segir að meginrökin fyrir nýjum búvörusamningi séu að mjólkurkvóti sé of dýr. Allt önnur verðlagning sé á framleiðslurétti sauðfjárbænda. Mjólkurbændur hafi stöðvað sína forystumenn, afnámi mjólkurkvóta hafi verið frestað: \"Nei, kvótakerfið og beingreiðslur eru bara sitthvort orðið yfir sama hlutinn. Þetta er alveg ný staða hjá sauðfjárbændum að forysta þeirra sé ekki að vinna að þeirra hagsmunum.“

Þórarinn Ingi Pétursson formaður Félags Sauðfjárbænda vísar fullyrðingum Sigríðar á bug í fréttum RÚV. Ekki sé stefnt í offramleiðslu. Kúabændur stöðvi framsal og frysti þannig kvótakerfið. Sauðfjárbændur hafi lagt sitt af fyrir löngu.