Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, var í viðtali í hádegisútvarpi Þjóðbrautar. Hann segir bændum brugðið vegna upplýsinga um Brúnegg. Hann leggur áherslu á að bændur almennt sinni störfum sínum af alúð.
Sindri segir bændum brugðið við fréttirnar og hann segir ekki laust við ótta um að neytendur efist um ágæti landbúnaðarafurða vegna þessa.
Hann vill þó meina að ekki sé ástæða til að óttast, þar sem almennt sé starf bænda með allt öðrum hætti.
Sindra undrar að ekki hafi verið gripið fyrr til aðgerða vegna Brúneggs.
Hér er viðtalið úr hádegisútvarpinu.
https://soundcloud.com/user-777639753/2911-ss-1
-sme