Bændagreiðslur þrefalt icesave

 

 

Nýr bú­vöru­samn­ing­ur til tíu ára gæti verið á við þre­falda Ices­a­ve-skuld­bind­ingu.

Á þetta bendir Morgunblaðið og vitnar til Finns Árnasonar, forstjóra Haga, sem ritaði grein í áramótablað Viskiptablaðsins.

Lengd samn­ings­ins bind­ur auk þess hend­ur næstu tveggja rík­is­stjórna við fjár­laga­gerð. Finn­ur seg­ir eðli­legt að fram fari þjóðar­at­kvæðagreiðsla um nýj­an 180 millj­arða króna bú­vöru­samn­ing.

Unnið er að nýj­um bú­vöru­samn­ingi við bænd­ur sem á að taka við af nú­ver­andi samn­ing­um sem renna út á næstu tveim­ur til þrem­ur árum. Stefnt er að því að gera einn ramma­samn­ingi fyr­ir all­an land­búnaðinn með und­ir­samn­ing­um fyr­ir ein­stak­ar bú­grein­ar.

Sam­kvæmt skýrsl­um OECD nemur stuðning­ur neyt­enda við land­búnaðar­kerfið á Íslandi um átján millj­örðum ár­lega. Sér­hags­munaaðilar ræða nú um nýj­an samn­ing til tíu ára án þess að neyt­end­ur, sem greiði fyr­ir samn­ing­inn, eigi aðild að þeim viðræðum, eftir því sem fram kemur í skrifum Finns.