Bæjarstjórinn á Akureyri, Eiríkur Björn Björgvinsson, hefur sjálfur fengið hatursbréf eftir að ákveðið var að Akureyrarbær myndi bjóða sýrlenskum flóttamönnum búsetu.
Í gær vitnuðu íslenskir fjölmiðlar til Telegraph sem sendi blaðamann til Akureyrar til að kynna sér hvernig sýrlenska flóttafólkinu reiddi af á Akureyri. Heilt yfir lætur fólkið vel af bænum en geta má þess að ekki hefur verið snjóþyngra í rúma tvo áratugi á Akureyri sem þýðir að fólkið glímir við stærri umskipti en ella. Nýju bæjarbúarnir láta vel af Akureyringum skv. Telegraph, gjafmildi og stuðningi, en sá skuggi fylgir viðtalinu að einhver hafði fyrir því að finna netfang einnar sýrlensku fjölskyldunnar og sendi henni haturspóst sem byggir á fordómum gegn bakgrunni flóttamannanna.
Af þessu tilefni má rifja upp að í umræðuþættinum KVIKAN á Hringbraut í október sl. ræddi Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri að eftir að upplýst varð að Akureyri myndi taka við flóttafólki fékk hann rætnar athugasemdir úr ýmsum áttum og þar á meðal bréf sem ekki er hægt að kalla annað en hatursbréf. Vegna trúnaðarskyldu er ekki hægt að segja frá hverjum bréfið kom en þar segir m.a.:
\"ég sá t.d. um daginn að akureyringar fagni komu flóttafólks frá sýrlandi. það kannast enginn við það sem ég þekki að hafa verið spurður út í það hvað þeim fynnist um slýkt, en meðan fólk er húsnæðislaust og án þeirrar aðstoðar sem það þarf á að halda og ykkur er skylt að veita þá á að fara á fullt í að taka við flóttafólki og veita þeim allt sem hægt er. ég bara spyr hvað eru starfsmenn bæjarins að fá mikið borgað fyrir að taka við þessu fólki, og afhverju er það forgangsmál fram yfir það að hjálpa okkar eigin fólki, okkar þjóð. ég hef nú séð á ýmsum vefmiðlum hversu auðvelt það er fyrir meðlimi ISIS að koma til evrópulanda með falsaða pappíra um að þeir séu sýrlenskir flóttamenn. enn þetta viljiði til landsins. þetta mynnir mig á þegar amnesti varði komu hells angels til landsins í skjóli mannréttinda, þrátt fyrir fjölda viðvarana frá mörgum þjóðum um að hleypa þeim ekki inn í landið. en nei enn og aftur velja íslendingar að hleypa glæpalíð í landið sem og öðrum sem koma ekki til með að bæta stöðuna í þessu landi.\"
Telegraph ræðir við bæjarstjórann sem segir að sumir beri ótta í hjarta vegna þess sem þeir þekki ekki en ekki sé um stórt vandamál að ræða.
Sjálfur segir Khattab Al Mohammad, einn hinna nýju kærkomnu íbúa á Akureyri, við Telegraph að móttökur heimamanna hafi verið betri en fólkið gat ímyndað sér.
Bæjarstjórinn á akureyri fékk hatursbréf
Fleiri fréttir
Nýjast