Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir að hún hafi haft samband við vefstjóra Vísis vegna ummælanna sem voru látin falla í hlaðvarpsþættinum Eldur og Brennisteinn.
Í þættinum töluðu þeir Snæbjörn Brynjarsson, fyrrverandi varaþingmaður Pírata, og Heiðar Sumarliðason, um að nauðganir séu „þjóðaríþrótt“ Eyjamanna. Þeir hafa beðist afsökunar á ummælunum og hefur þátturinn verið tekinn úr birtingu á vef Vísis.
Sjá einnig: Heiðar og Snæbjörn segja íþrótt Eyjamanna að „nauðga konum frá meginlandinu“
Sjá einnig: Heiðar og Snæbjörn biðjast afsökunar á ummælum um Eyjamenn
Íris segir að þeir hafi farið yfir öll velsæmismörk: „Í þættinum „Eldur og Brennisteinn“ var farið yfir öll velsæmismörk gagnvart samfélagi okkar hér í Eyjum og það stimplað sem einhverskonar griðastaður fyrir kynferðisbrotamenn. Athugasemdum mínum var vel tekið og ég sé að þátturinn er ekki lengur aðgengilegur á síðunni. Sömuleiðis hafa þeir sem stýra þættinum beðist afsökunar á framgöngu sinni.“
Í færslu á Facebook segir bæjarstjórinn að íbúar Eyja verði ekki beygðir: „Það er eðlilegt að okkur svíði þegar Þjóðhátíðin okkar og samfélagið allt verður fyrir illu, ósanngjörnu og jafnvel meinfýsnu umtali af þessu tagi. En við látum það ekki beygja okkur heldur styrkja. Tökum saman höndum, færum umræðuna á hærra plan, berjumst saman af öllu afli gegn ofbeldi og pössum uppá hvert annað!“
Margir taka undir þetta, þar á meðal Egill Helgason fjölmiðlamaður sem segir: „Ömurlegir sleggjudómar.“