Gunnar Ingi Birgisson, bæjarstjóri Fjallabyggðar og einn reyndasti sveitastjórnarmaður landsins, vandar kollega sínum í Þorlákshöfn ekki kveðjurnar vegna Hafnarnes – Ver hf. Gunnar Ingi skrifar í Moggann og segir þar meðal annars:
„Um leið og sala aflaheimildanna var kunngjörð mætti bæjarstjóri Ölfuss í fjölmiðla og fór mikinn og vandaði ekki fyrirtækinu kveðjurnar. Sama gerði bæjarráð. Hann hafði þó aldrei heimsótt fyrirtækið í bæjarstjóratíð sinni né talað við forsvarsmenn fyrirtækisins um stöðuna. Þessar árásir bæjarstjórans, sem situr í umboði meirihluta bæjarstjórnar, á Hafnarnes – Ver eru mjög dapurlegar í ljósi þess að fyrirtækið hefur verið ein af burðarstoðum atvinnulífs í Þorlákshöfn í áratugi.“
Gunnar Ingi segir fyrirtækið hafa verið þvingað:
„Nú á dögunum var útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Hafnarnes – Ver ehf. í Þorlákshöfn þvingað af Landsbankanum til að selja aflaheimildir sínar til að ganga frá skuld við ríkisbankann. Samkvæmt frásögn forsvarsmanna fyrirtækisins keypti fyrirtækið aflaheimildir árið 2006 til að styrkja rekstrargrundvöll sinn og tók hluta af kaupverðinu að láni hjá Landsbankanum. Árið 2008 hrundi íslenskt efnahagslíf og á sama tíma voru aflaheimildir fyrirtækisins skertar ár frá ári, þannig að rekstrarstaða þess versnaði til muna. Mörg önnur fyrirtæki í sjávarútvegi lentu í sömu stöðu og mörg hver fengu afskriftir að hluta á skuldum sínum hjá bankastofnunum til að tryggja áframhaldandi rekstur og störf í viðkomandi byggðum.“