Bæjarstjóri vill bjarga bænum frá smán

Það kemur í ljós á næstu dögum hvort bæjarstjóri Hafnarfjarðar nær að endursemja við fyrirtækið sem á og rekur Áslandsskóla á kostnað bæjarins. Skattgreiðendur í Hafnarfirði munu ella tapa milljörðum króna á samningi um einkaframkvæmd vegna skólans þegar upp verður staðið.


Fréttastofa Stöðvar 2 hefur fjallað ítarlega um málið um helgina, en þar hefur komið í ljós að að samningstíma loknum verður sveitarfélagið búið að greiða upp skólann án þess að eiga krónu í honum. Byggingarkostnaður með húsgögnum og búnaði, uppreiknaður með hliðsjón af vísitölu neysluverðs, er sagður 2,2 milljarðar króna, en kostnaður samfélagsins verður í fyllingu samningsins, að teknu tilliti til fjármagnsliða, um 6 milljarðar króna.


Áslandsskóli er alfarið í einkaeign en það fyrirkomulag má rekja til samnings sem undirritaður var þann 16. mars 2000 milli Hafnarfjarðarbæjar og FM húsa ehf. um svokallaða einkaframkvæmd. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn fóru með meirihluta í bæjarstjórn á þessum tíma. Málið var umdeilt en þáverandi meirihluti bæjarstjórnar taldi samninginn hagstæðan fyrir bæinn. Samkvæmt samningnum skyldi FM hús annast byggingu og rekstur Áslandsskóla í 27 ár.


„Á samningstímanum munu skattgreiðendur í Hafnarfirði hafa greitt upp allan kostnað við byggingu og rekstur þessarar fasteignar og þar með talinn fjármagnskostnað. Án þess að eignast krónu í eigninni að samningstíma loknum,“ segir Gunnar Axel Axelsson bæjarfulltrúi fyrir Samfylkinguna í Hafnarfirði við fréttastofuna um þessa pólitísku gjafmildi sem vinstrimenn í bænum kalla mestu mistök sem gerð hafi verið hjá nokkru sveitarfélagi.