Bjarni Th. Bjarnason, bæjarstjóri Dalvíkur þáði boð Samherja til Þýskalands á dögunum, en útgerðarfyrirtækið er á meðal allra fjölmennustu og stærstu vinnustaða í bænum.
Þetta kemur fram í Stundinni í dag, en fyrr hefur verið greint frá því að tveir bæjarfulltrúar á Akureyri þáðu Samherjaboðið í sömu ferð - og taldi annar þeirra í samtali við fjölmiðla það vera eðlilegt þótt eflaust hefði mátt upplýsa um greiðann fyrirfram. Siðfræðingur taldi málið vera á mjög gráu svæði þegar boðsferðin var borin undir hann.
Bjarni útskýrir mál sitt með eftirfarandi hætti í Stundinni í dag: \"Eftir að hafa farið yfir málið með mínu fólki hérna á Dalvík þá ákvað ég að þiggja boðið því mér fannst þetta hinn eðlilegasti hlutur. Ég vildi sýna Samherja þá virðingu og gleðjast með þessu fyrirtæki sem er máttarstólpi í okkar sveitarfélagi,“ segir hann aðspurður um ferðina sem hann þáði til Þýskalands frá útgerðarfélaginu Samherja, þar sem tveimur togurum dótturfélags Samherja, Deutsche Fischfang Union (DFFU, voru gefin nöfn þann 12. janúar síðastliðinn. Bjarni segir að hann hafi verið eini starfsmaður Dalvíkurbæjar sem fór í boðsferðina: \"Ég var sá eini,“ segir Bjarni en Samherji hefur sem fyr segir verið með viðamikla starfsemi á Dalvík um langt árabil.