Þeir Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, gera alvarlegar athugasemdir við samanburð Samtaka atvinnulífsins á rekstrarframmistöðu stærstu sveitarfélaganna, sem birtst hafa í fréttum. Segja þeir í sameiginlegri tilkynningu, samanburðinn ekki gefa rétta mynd af raunverulegum rekstri sveitarfélaganna, en Hafnarfjörður og Reykjanesbær komu verst út þeirra sveitarfélaga sem samanburðurinn náði yfir.
Nánar á;
http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/05/10/baejarstjorar-snua-bokum-saman-gegn-samtokum-atvinnulifsins/