Stefnt er að því að íbúar kjósi um nafn á sameinað sveitarfélag Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs fyrir páska.
Nafnanefnd fyrir sameinað sveitarfélag mun á fundi sínum í dag velja þau nöfn sem kosið verður um. Nefndin hefur fengið umsögn Örnefnanefndar um þau 10 nöfn sem hún sendi til umsagnar Örnefnanefndar en alls bárust 392 tillögur að nýju nafni á sameinað sveitarfélag, samkvæmt frétt á vf.is
Nafnið „Suðurnes“ var notað í nokkrum þessarra tillagna. Nágrannasveitafélögin hafa gert athugasemdir við það og efast um að það standist reglur Örnefnanefndar. Nöfnin Sandgerði og Garður verða áfram notuð um byggðakjarnana og koma því ekki til álita sem nöfn á hið nýja sveitarfélag.
Almenna kosningin verður leiðbeinandi en ekki bindandi. Nafn hins sameinaða sveitarfélags verður staðfest af nýrri sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags sem kjörin verður 26. maí næstkomandi.