Bæjarfulltrúi framsóknar stýrir stapa

Guðmund­ur Bald­vin Guðmunds­son, skrif­stofu­stjóri hjá Stapa líf­eyr­is­sjóði, er nú starf­andi staðgeng­ill fram­kvæmda­stjóra eft­ir að Kári Arn­ór Kára­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri, hætti störf­um á laug­ar­dag­inn. Fram kom í Kastljósi í gærkvöld að Kári Arnór var viðriðinn tvö félög í aflandsskjóli og fékk há lán til umsýslu erlendis frá Kaupþingi líkt og fleiri valdir viðskiptamenn hér á landi. Strangar reglur gilda um viðskiptaumsvif forstjóra lífeyrissjóða hér á landi.

Stjórn sjóðsins fund­ar í vik­unni og mun þá taka ákvörðun um fram­haldið.

Í yfirlýsingu frá Kára á laugardag sagði að hann teldi það starfi sjóðsins fyrir bestu að hann stigi til hliðar.

Guðmundur Baldvin er oddviti framsóknarmanna á Akureyri og annar tveggja bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins í bæjarstjórn á Akureyri. Ekki eru greidd full laun fyrir setu í bæjarstjórn á Akureyri.