Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins á Akureyri hafa sent frá sér ályktun þar sem þeir krefjast þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segi af sér.
Ekki er vitað til að trúnaðarmenn Framsóknarflokksins hafi stigið þetta skref áður vegna Tortólamálsins.
\"Vegna þess trúnaðarbrests sem við teljum að skapast hafi milli forsætisráðherra og flokksmanna Framsóknarflokksins sem og landsmanna allra, skorum við á Sigmund Davíð Gunnlaugsson að segja sig frá störfum forsætisráðherra án frekari tafa,\" segir í áskoruninni til formanns framsóknarmanna.
Undir áskorunina rita:
Guðmundur Baldvin Guðmundsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akureyri,
Ingibjörg Ólöf Isaksen bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akureyri,
Siguróli M. Sigurðsson varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akureyri,
Tryggvi Már Ingvarsson varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akureyri
Óskar Ingi Sigurðsson varaformaður umhverfisnefndar Akureyrarbæjar
Jóhannes Gunnar Bjarnason
Jakob Björnsson
Björn Snæbjörnsson
Viðar Valdimarsson
Sigmundur Davíð er fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis, kjördæmis bæjarfulltrúanna á Akureyri.