Bæjarfélög láni til íbúðakaupa

 

Vinsældir óverðtryggðra lána af íbúðalán­um til heim­ila eru orðnar slíkar að hjá Arion banka eru óverðtryggð lán orðin algengari en verðtryggð. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Mikl­ar upp­greiðslur hjá Íbúðalána­sjóði eiga þátt í þessari þróun. Hratt gengur á lán Íbúðalánasjóðs til heim­ila og má áætla samkvæmt Mogganum að þau lán hafi minnkað um tæpa 40 milljarða á fyrstu átta mánuðum árs­ins. Leiðrétt­ing­in skýr­i þetta að hluta.

Ásgerður Hall­dórs­dótt­ir, bæj­ar­stjóri á Seltjarn­ar­nesi, hyggst kanna hvort bæj­ar­fé­lagið eigi að fara að lána ungu fólki fyr­ir inn­borg­un í íbúð. Greiðslu­matið sé of strangt, að því er fram kem­ur í umfjöll­un um stöðuna á íbúðalána­markaði í Morgu­blaðinu í dag.