Gömul og ný stór sakamál leidd til lykta

Allmörg sakamál sem vakið hafa mikla athygli bíða úrlausnar dómstólanna í vetur. Aðalmeðferð verður í næstu viku í Héraðsdómi Suðurlands í máli Vals Lýðssonar sem ákærður er fyrir að hafa orðið bróður sínum að bana á bænum Gýgjarhóli 2 í Árnessýslu. Nokkur manndrápsmál bíða einnig meðferðar í Landsrétti.

Mál Thomasar Møller Olsen verður tekið fyrir síðar í haust og meðal þess sem ætla má að tekist verði á um eru akstursleiðir þær sem Thomas ók morguninn örlagaríka en í matsgerð sem dómkvaddur haffræðingur skilaði nýlega segir að líkami Birnu Brjánsdóttur hafi verið settur í sjó mun lengra frá þeim stað sem lögregla hafði áður talið.

Nánar á

http://www.visir.is/g/2018180829851/baedi-gomul-og-ny-stor-sakamal-leidd-til-lykta-med-domi-a-komandi-misserum-