Bjartmar Guðlaugsson og Frank Sinatra verða báðir á dagskrá útvarps Hringbrautar í fyrramálið. Bjartmar verður í þætti Sigurjóns M. Egilssonar, sem hefst klukkan tíu og stendur til tólf. Frank Sinatra verður í nýjum þætti Geirs Ólafssonar sem stendur frá 12 til klukkan 14:00.
Bjartmar mun segja sögur, lög með honum og eftir hann verða leikinn og ekki er minnsti vafi á að hann mun gleðja hlustendur. „Ég er aðdáandi Bjartmars,“ segir Sigurjón og bætir við að Bjartmar sé fjölhæfur. Tónlistamaður og myndlistamaður. „Og hann hefur skoðanir sem hann þorir að tjá.“
„Ég þekki Nancy, dóttur Frank, svo ég á auðvelt með að afla upplýsinga um meistara Frank Sinatra,“ segir Geir Ólafsson söngvari. Geir mun segja okkur frá lífshlaupi þessa mikla listamanns. Öll vitum við að Geir er aðdáandi Sinatra.
Geir á eftir að fjalla meira um Frank Sinatra sem og aðra af hans kynslóð.
Það er mikið að gerast í útvarpi Hringbrautar. Fleiri þættir munu bætast við innan skamms.