Sannast sagna bað ég heitt og innilega til guðs um að ég gæti sagt nei við því að fara aftur í pólitík, en vegir guðs eru náttúrlega órannsakanlegir - og því er svona komið fyrir mér, segir Eyþór Arnalds, nýr leiðtogi sjálfstæðismanna í stórskemmtilegu samtali þeirra Sigmundar Ernis í Mannamáli, sem frumsýnt var í vikunni.
Hann segir pólitíkina vera ólæknandi vírus sem hann bara ráði ekki við, oftar en ekki hafi hann reynt að hætta í pólitíkinni, en það hafi bara ekki tekist - og gildir þar einu þótt áberandi stjórnmálamenn eins og hann fái það einatt óþvegið og auðvitað alls lags óþverra ofan í kaupið; baknagið pirri hann ekki um of - og svo kunni hann svo vel við sig í skapandi umhverfi pólitíkurinnar, hún sé einmitt svo frjó og skemmtileg þegar hún er upp á sitt besta.
Hann segir það ekki erfitt fyrir sig að yfirgefa athafnalífið og fjárfestingatímann í lífi sínu í skiptum fyrir borgarmálin; hann hafi efnast ágætlega á undanliðnum árum og það geri það að verkum að hann þurfi ekki að óttast það að missa sæti sitt í borgarstjórn og þess utan geti hann um frjálst höfuð strokið og verið engum háður peningalega í verkum sínum fyrir íbúa höfuðborgarinnar.
Þeir Sigmundur Ernir rifja upp tónlistarárin hans í þættinum, allt frá celló-námi í æsku - en pabbi hans valdi hljóðfærið - og vinskapinn eilífa með meðlimum Tappa tíkarass og svo náttúrlega stofnun Todmobile fyrir 30 árum, en hvorutveggja böndin hafi verið tilraunastarfsemi af bestu gerð; rokkið og pönkið eigi ennþá hug hans allan, það síðarnefnda sé uppreisn gegn stöðnuðu samfélagi og kerfislægum þankagangi sem frjálslyndir hægrimenn eins og hann hafi ímugust á.
Hann vill koma borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna aftur til fólksins, um árabil hafi flokkurinn verið hulinn þoku í Reykjavík og þess utan klofinn í mörgum veigamiklum málum og þar af leiðandi talað harla óskýrt. Þessu þurfi að breyta og það muni hann gera.
Mannamál er aðgengilegt á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.