Aylan litli kominn heim í kistu

Faðir Ayl­an, sýr­lenska drengs­ins sem skolaði á land á tyrk­neskri baðströnd, er kom­inn til heima­bæj­ar fjöl­skyld­unn­ar með lík eig­in­konu sinn­ar, Reh­an, og tveggja sona, Galip fimm ára og Ayl­an. Þau drukknuðu öll á flótt­an­um til Evr­ópu. 

Mynd­ir af Ayl­an, sem var þriggja ára gam­all, vöktu heims­at­hygli og birtu flest­ir helstu fjöl­miðlar heims mynd­irn­ar. Enda þykja þær tákn­ræn­ar um þá stöðu sem fleiri millj­ón­ir Sýr­lend­inga eru í. 

Frá því er greint í ítarlegri frétt Morgunblaðsins í dag um raunir Kurdi-fjölskyldunnar að faðirinn Abdullah Kurdi hafi komið snemma í morg­un til tyrk­neska landa­mæra­bæj­ar­ins Suruc með lík­kist­ur sona og eig­in­konu. Bif­reið sem flutti kist­urn­ar og Abdullah hélt síðan áfram til Kobane í Sýr­landi en fjöl­miðlafólk fékk ekki að fara yfir landa­mær­in.

Tólf sýr­lensk­ir flótta­menn drukknuðu á miðviku­dag þegar tveir bát­ar sukku við í Eyja­hafi við strönd Tyrk­land en fólkið var að reyna að kom­ast til grísku eyj­unn­ar Kos. 

Mynd­ir af líki Ayl­an voru birt­ar á sam­fé­lags­miðlum strax á miðviku­dag og birtu flest­ir fjöl­miðlar mynd­irn­ar í gær. Lít­ill dreng­ur lát­inn á strönd­inni í Bodr­um, tákn­mynd þeirra hörm­unga sem flótta­fólk upp­lif­ir. 

Í fjög­ur ár hef­ur stríð geisað í Sýr­landi þar sem millj­ón­ir hafa flúið heim­ili sín og tæp­lega 300 þúsund hafa týnt lífi. Eyðilegg­ing­in blas­ir við alls staðar og hafa marg­ir flúið land, flest­ir til Tyrk­lands, 1,8 millj­ón, Líb­anon, 1,3 millj­ón­ir hið minnsta og um 700 þúsund í Jórdan­íu. Talað er að um 300 þúsund flótta­menn hafi komið til Evr­ópu í ár, flest­ir frá Sýr­landi, Af­gan­ist­an og Írak. Um 80% þeirra flótta­manna sem koma til hafa lögvar­in rétt á að sækja um hæli vegna aðstæðna í heima­land­inu.

Í frétt Morgunblaðsins, sem hér er áfram vitnað til, segir að Flótta­mannaaðstoð Sam­einuðu þjóðanna (UN­HCR) hvet­ji ríki Evr­ópu­sam­bands­ins til þess að sam­ein­ast um að taka á móti alls 200 þúsund flótta­mönn­um en sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi áætl­un er gert ráð fyr­ir því að taka á móti 40 þúsund flótta­mönn­um í ár. Ljóst er að sú tala mun hækka og er víða fundað í ríkj­um ESB þessi dægrin um hvað sé til ráða. Það stytt­ist í vet­ur­inn og vand­inn brýnn.

Abdullah og fjöl­skylda hans eru ekk­ert eins­dæmi þegar kem­ur að lífi Sýr­lend­inga í dag. Fjöl­skyld­an er frá Kobane en fór þaðan til Dam­askus árið 2012. Þegar lífið varð óbæri­legt þar héldu þau til Al­eppo en þegar átök­in brut­ust út þar fóru þau til Kobane. En aft­ur, þegar átök brut­ust þar út (við skæru­liða Rík­is íslams) flúði fjöl­skyld­an til Tyrk­lands. Í janú­ar tókst að koma Ríki íslams í burtu frá Kobane og þá fór fjöl­skyld­an aft­ur heim í þeirri von að ástandið þar væri þannig að þau gætu haldið áfram með líf sitt.

En í júní komu liðsmenn Rík­is íslams aft­ur til borg­ar­inn­ar og tóku fjöl­marga íbúa í gísl­ingu. Á tveim­ur dög­um drápu þeir 200 borg­ar­búa. Óör­yggið neyddi fjöl­skyld­una til þess að leggja af stað út í óviss­una á nýj­an leik og ákvað hún að reyna að kom­ast til Evr­ópu í gegn­um Tyrk­land. Þau dvöldu þar í Bodr­um í einn mánuð, söfnuðu pen­ing fyr­ir ferðalag­i sem heitið var til Kan­ada þar sem ætt­ingj­ar þeirra búa. Kanadísk stjórn­völd höfðu synjað þeim um hæli en þau ákváðu að reyna að kom­ast þangað upp á von og óvon „Þau fóru til þess að leita að betra lífi,“ seg­ir blaðamaður frá Kobane sem þekk­ir sögu þeirra.