Sif Sigmarsdóttir skýtur föstum skotum að Háskóla Íslands, Rauða krossinum, Slysavarnarfélaginu Landsbjörg og SÁÁ í einlægum pistli sem birtist í Fréttablaðinu í dag, þar sem hún segir frá því sem hún varð vitni að grátandi manni við spilakassa í umferðarmiðstöðinni á BSÍ.
Pistilinn hefur Sif á því að segja frá erfiðri ferðasögu fjölskyldunnar þegar hún kom heim til Íslands frá London fyrir jólin. Segir hún frá því hvernig taska fjölskyldunnar með öllum jólagjöfunum og jólafötum varð eftir í London.
„Á þriðja degi í sömu fötum fengum við sms skilaboð. Dýrð sé Guði í upphæðum! Taskan var komin á BSÍ. Í vígahug arkaði ég inn á Umferðarmiðstöðina staðráðin í að segja einhverjum til syndanna. Var Icelandair að reyna að eyði-leggja jólin? Vissi fyrirtækið ekki að það eru mannréttindi að þurfa ekki að vera í sömu nærbuxum þrjá daga í röð? Skyndi-lega heyrði ég hljóð, einhvers konar ýlfur eins og frá særðu dýri. Ég leit yfir öxlina og kom auga á lítið hliðarherbergi. Af óforbetranlegri hnýsni gægðist ég inn.“
Því næst segir hún frá því sem þar fyrir augu bar:
„Aðeins einn maður var í herberginu sem var fullt af spilakössum. Hann sat álútur á stól við einn kassann. Axlirnar á honum skókust. Hann grét með ekkasogum. Ég snerist á hæli og skjögraði í átt að töskugeymslunni. Ég sótti ferðatöskuna en skammaði engan því úr mér var allur vindur. Hver var þessi maður? Af hverju var hann að gráta? Hvað hafði hann tapað miklu í spilakassanum? Átti hann ekki lengur fyrir jólagjöfum handa börnunum sínum?“
Hún segir því næst að allt hafi verið á floti í töskunni. Harmur mannsins sem grét við spilakassann hafi hins vegar fylgt sér.
„Það er vægt til orða tekið að kalla það hræsni þegar samtök sem kenna sig við góðgerðarstörf og upplýsingu gera sér fíkn fólks að féþúfu. Háskóli Íslands, Rauði krossinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg og SÁÁ; þið berið ábyrgð á böli mannsins sem grét við spilakassann á BSÍ fyrir jólin. Finnst ykkur það í lagi?“
„axlirnar á honum skókust. hann grét með ekkasogum“
Fleiri fréttir
Nýjast