Guðlaugur Þór Þórðason utanríkisráðherra flutti ávarp. Þar sagðir ráðherrann:
\"Bresk stjórnvöld hafa lýst því yfir að þau hyggjast verða málsvarar fríverslunar og einfaldra viðskiptahátta eftir útgöngu landsins úr ESB. Þetta markmið samræmist vel íslenskum hagsmunum og vekur væntingar um að að semja megi um enn betra markaðsaðgengi fyrir íslenskan útflutningin við Bretland - einkum fyrir sjávarafurðir. Ég er enn sannfærðari um þetta eftir fundi mína með ráðherrum bresku ríkisstjórnarinnar í London í síðustu viku.\"