c
Í fréttum RÚv i morgun er sagt frá því að Werner Feymann, kanslari Austurríkis hafi greint frá því í morgun að fljótlega verði landamærum landsins aftur lokað fyrir þeim sem ekki hafa vegabréfsáritun. Um neyðartilvik hafi verið að ræða um helgina og þá hafi þurft að bregðast hratt við. Eftir símtal við Viktor Orban og samtal við Angelu Merkel hafi þau ákveðið að nú yrði reynt að koma á reglu í flaumi flóttamanna til Evrópu.
Frans páfi kallaði á aðstoð allra trúarsamfélaga í Evrópu í stólræðu sinni í dag. Hann vill að allir kaþólskir söfnuðir, klaustur og kirkjur í Evrópu taki að sér eina fjölskyldu hvert.