Austurríki herðir landamæravörslu

Austurríki hefur tekið upp tímabundna landamæravörslu meðfram ungversku landamærunum og þarlend stjórnvöld útiloka ekki að eftirlit verði einnig hert á öðrum landamærum. Þúsundir flóttafólks hafa farið í gegnum Austurríki á undanförnum vikum á leið sinni til Þýskalands.
 

Fréttavefur RÚV fjallar um þróun þessara mála í morgun, en þar segir að eftir að Þjóðverjar tóku upp tímabundið landamæraeftirlit, með vísan til sérstaks undanþáguákvæðis í Schengen-sáttmálanum, hafi myndast mikill flöskuháls í Salzburg og nágrenni, þaðan sem flest flóttafólk fór yfir til Þýskalands. Miklar tafir hafi orðið á för flóttafólksins frá Austurríki af þessum sökum, sem aukið hafi mjög álag á alla þá sem að því koma að greiða för þess í gegnum landið. Með landamæraeftirlitinu vonist menn til að koma á jafnvægi inn- og útstreymis flóttafólks til að minnka og jafna álagið.

Í fréttinni segir að lestarsamgöngur milli Salzburgar og München hafi verið stopular og voru þær reyndar stöðvaðar um hríð að kvöldi mánudags, eftir að Þjóðverjar tóku upp landamæraeftirlit. Aðalbrautarstöðin í Salzburg er yfirfull af flóttafólki sem bíður þess eins að geta haldið áfram för sinni til Þýskalands. Samkvæmt austurríska blaðinu Kurier íhuga forsvarsmenn austurrísku járnbrautanna, ÖBB, að loka aðalbrautarstöðinni um hríð.

Þýskalandsmegin er hætt að flytja flóttafólkið alla leið til München eins og gert var til skamms tíma, þar sem það var skráð strax á brautarstöðinni. Þar sem útlendingaeftirlitið í München annar því ekki lengur að skrá allan þann fjölda flóttafólks sem kemur til landsins eftir þessari leið hefur verið brugðið á það ráð að stöðva allar lestir sem koma frá Austurríki í landamærabænum Freilassing. Þar er flóttafólkinu gert að færa sig yfir í sérstakar lestir, sem síðan aka því áfram til hinna ýmsu borga annarra í Þýskalandi, þar sem tekið er á móti því með viðeigandi hætti, svo sem segir í umfjöllun RÚV um málið í morgun.