Austurland og vestfirðir erfiðastir

Í nýrri viðhorfsmönnun meðal erlendra ferðamanna sem ekið hafa um landið kemur í ljós að ferð þeirra um vegi landsins er ýmsum erfiðleikum bundin. Til dæmis skilja ekki allir ferðamenn ensku en skilti eru oft á tíðum á íslensku og ensku eingöngu. Einnig eru merkingar mjög ólíkar merkingum í öðrum löndum og reglur um t.d. hringtorg, hver á réttinn, eru líka ólíkar. Sigríður Lilja Skúladóttir fjallar um þetta í nýrri MA ritgerð í umhverfisverkfræði við HÍ.

Hún fékk svör frá tæplega ellefu hundruð ferðamönnum frá mörgum löndum sem hún sótti í gegnum samfélagsmiðla. Þeim ferðamönnum sem þykir erfiðast að aka um eru frá Así annars vegar og hins vegar frá Evrópulöndum: Spáni, Frakklandi og Þýskalandi. Sigríður Lilja segir svörin endurspegla líka vel umræðuna um samgöngu mál hér á landi. Ferðamönnunum hafi fundist erfiðast að fara um á Austurlandi og Vestfjörðum.

Hins vegar hafi niðurstöður um hvernig t.d. Strætó appið virkar verið frekar jákvæðar og vafalaust meiri tækifæri til að halda slíkum lausnum að ferðamönnum.

Rætt er við Sigríði Lilju í þættinum Ferðlagið á Hringbraut í kvöld kl.22.