Steingrímur J. Sigfússon vandar þeim Vigdísi Hauksdóttur og Guðlaugi Þór Þórðarsyni ekki kveðjurnar og veltir fyrir sér hvort ekki eigi að rannsaka tilurð skýrslu þeirra. Steingrímur segir óviðunandi að fólk sé borið þungum sökum þó þeim hafi verið vísað á bug. Aftur og aftur.
Steingrímur segir að í skýrslunni séu svakalegar fullyrðingar, „...fjórða eða fimmta umferð í þessu máli.“
Þá sagði hann að látið væri að því liggja að hér hafi verið eitt allsherjar samsæri gegn hagsmunum Íslands.
Steingrímur segir skýrsluna vera nafnlausa, höfunda sé ekki getið, annarra en þeirra Vigdísar og Guðlaugs Þórs. „Ég á eftir að trúa því að annað fólk í fjárlaganefnd leggi nafn sitt við skýrsluna,“ sagði Steingrímur. „Þetta á eftir að draga dilk á eftir sér.“