Utanríkisráðherrar Íslands, Færeyja og Grænlands undirrituðu í dag yfirlýsingu um aukið samstarf. Kanna á kosti þess að gera þríhliða fríverslunarsamning milli landanna.
Vinnuhópur með fulltrúum þjóðanna kemur saman í fyrsta skipti í Nuuk í Grænlandi í október. Þetta er liður í stefnu stjórna landanna þriggja um meiri samvinnu meðal vest norrænu þjóðanna. Það kemur ekki síst til af því að alþjóðleg vakning er orðin um mikilvægi norðurslóða. Brýnt sé að skilgreina sameiginlega viðskiptahagsmuni þeirra.
Lilja Alfreðsdóttir undirritaði yfirlýsinguna fyrir hönd Íslands, Poul Michelsen fyrir hönd Færeyja og Vittus Qujaukitsoq fyrir Grænland.