Ríkið græðir á lækkun skatta

Ólafur Jón Sívertsen bendir á það í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is að kjarasamningar launafólks feli í sér auknar skatttekjur ríkisins þrátt fyrir loforð um skattalækkanir.  Hann segir að sjálfsögðu aukist tekjur opinberra aðila vegna hærri launa.


Ólafur Jón segir ríkisstjórnina gera nú örvæntingarfulla tilraun til að freista þess að rétta hlut sinn með aðkomu að kjarasamningunum. Lofað hafi verið skattalækkunum upp á 9 til 11 milljarða króna á ári.


„Hins vegar er hvergi minnst á þær auknu skatttekjur sem ríki og sveitarfélög fá vegna þeirrar launahækkunar sem samið var um og taka gildi frá 1. mai sl.  Að sjálfsögðu aukast tekjur opinberra aðila vegna hærri launa. Fróðir menn telja að sú aukning skatttekja sem af launahækkunum leiðir sé meiri heldur en lækkun skatta sem boðuð er. Auk þess byrja hærri skattar að koma inn þegar í næsta mánuði en ríkisstjórnin lofar lækkun skatta á næsta ári vegna brottfalls milliþreps í tekjuskatti. Ríkið er því ekki að spila út neinum lækkunum skatta, heldur fá meira í sinn hlut þegar allt er talið," segir Ólafur.


Þá segir hann útspil ríkisstjórnarinnar um 10 milljarða stuðning við byggingu leiguíbúða í félagslega kerfinu í raun loforð upp í ermi næstu ríkisstjórnar.

 

„Það er mjög athyglisvert, eða öllu heldur grátbroslegt, að fylgjast með því að ríkisstjórnin er að lofa 2,5 milljörðum króna á ári frá og með árinu 2016 í verkefnið til fjögurra ára, alls 10 milljörðum króna. Ríkisstjórnin er með öðrum orðum að lofa upp í ermina – ekki á sér heldur næstu ríkisstjórn. Lofað er 10 milljörðum á 48 mánuðum frá janúar 2016 til desember 2019. 

 

Ríkisstjórnin verður við völd 16 af þessum 48 mánuðum, eða þriðjung þess tíma sem verkefnið nær yfir, nái hún að halda út kjörtímabilið. Flest bendir til þess að ný ríkisstjórn taki við vorið 2017 og að núverandi flokkar komi þar hvergi nærri miðað við það fylgi sem þeir mælast með og það traust sem þeir njóta. 

 

„Það er frekar létt verk og löðurmannlegt að lofa upp í ermina á öðrum."