Bregðast verður við hnignun lífríkis í Mývatnssveit með sama hætti og þegar brugðist er við náttúruhamförum af fullum þunga.
Þetta segir Jón Gunnatrsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Skipa verður hóp sérfræðinga sem greinir vandann og kemur með tillögur um úrbætur. \"Fámennt sveitarfélag ræður ekki við verkefnið og því verður ríkisstjórnin/þingið að tryggja það fjármagn sem til þarf Það má engu til spara og sumarið má ekki líða án þess að það sé notað til þeirra framkvæmda sem nauðsynlegar eru,\" segir Jón Gunnarsson.
Harðar ályktanir heimamanna hafa vakið athygli undanfarið þar sem vísað er til þess að sveitarfélagið Skútustaðahreppur hafi ekki bolmagn til að grípa til þeirra ráðstafana sem þurfi til að vernda Mývatn. \"Viðkvæm náttúruperla á heimsvísu er undir og afleiðingar aukins straums ferðamanna með tilheyrandi álagi á náttúruna eru kannski að birtast okkur hér með hvað skýrustum hætti. Ábyrgð okkar er mikil og málið þolir enga bið. Þetta mál brýnir einnig mikilvægi umræðu um gjaldtöku í ferðaþjónustunni,\" segir Jón Gunnarsson.