Aukinn tekjuhalli hjá ríkinu

Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 10,3 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2015. Er það lakari niðurstaða en á sama tíma 2014 þegar afkoman var neikvæð um 3,1 milljarð króna.

Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar í morgun, en þar segir að tekjuhallinn hafi numið 1,9% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 4,8% af tekjum hins opinbera. Fyrstu 6 mánuði ársins nam hallinn 17,6 milljörðum eða 4,0% af tekjum tímabilsins.

Hagstofan birti einnig í morgun yfirlit yfir tekjuafkomu ríkisins á öllu síðasta ári, en þar vantaði 1,2 milljarða til að endar næðu saman, eða sem nemur 0,1% af landsframleiðslu.

Tekjur hins opinbera í fyrra námu 907,0 milljörðum króna og jukust um 111,3 milljarða króna milli ára eða um 14,0%. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 45,6%. Útgjöld hins opinbera voru 908,2 milljarðar króna og jukust um 9,4% en hlutfall þeirra af landsframleiðslu var 45,7%.

Hrein peningaleg eign hins opinbera var neikvæð um 1.000 milljarða króna árið 2014 eða 50,3% af landsframleiðslu og er það 30 milljörðum verri staða en 2013. Peningalegar eignir voru 1.291 milljarður og heildarskuldir 2.291 milljarður króna í árslok 2014.

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera árið 2014. Í því má finna talnalegt yfirlit um helstu þætti opinberra fjármála, þ.e. ríkis, sveitarfélaga og almannatrygginga. Áherslan er fyrst og fremst á hið opinbera en samsvarandi upplýsingar um undirgeira þess er að finna á vefsíðu Hagstofunnar.