Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna hafnar því að verið sé að auka stuðning við landbúnað með nýjum búvörusamningi, aftur á móti sé verið að gera greininni kleyft að framleiða afurðir á hagstæðara verði fyrir neytendur. Samningurinn er mjög umdeildur m.a. vegna þess hve lengi hann á að gilda, samningagerðin hafi ekki verið gagnsæ og sumt í samningunum samræmist ekki tollasamningum Íslands við ESB. Meðal þingmanna þvert á flokka er mjög óvíst um stuðning við samninginn og meðal bænda er einnig ágreiningur. Ungir bændur og nýliðar í greininni segjast hafa gleymst í samningunum og séu svefnlausir af áhyggjum vegna óvissu sem í þeim eru að þeirra sögn og samningurinn sé unninn í fljótfærni. Augljóst er að mjög mikill munur er á því hvernig samingurinn snertir bændur í greininni. Næsta víst er að Alþingi geri breytingar á samningnum þegar það kemur saman í lok sumars.
Níu hundruð milljónir á næsta ári
Útgjöld ríkisins til landbúnaðarmála hækka um rúmar níu hundruð milljónir árið 2017 en fara stiglækkandi út samningstímann og verða heldur lægri á síðasta ári samningsins en þau verða í ár, samkvæmt tilkynningu á vef landbúnaðarráðuneytisins.
Búvörusamningurinn sem landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra skrifuðu undir með bændum í febrúar síðastliðnum er í fjórum liðum. Einn Rammasamningur og aðrir þrír sem fjalla um starfsskilyrði sauðfjárbænda, kúabænda og garðyrkjubænda. Sindri verður í viðtali á Hringbraut í kvöld.
Útgjöld vegna samninganna fjögurra
Samkvæmt upplýsingum á vef Bændasamtakananna verða heildarútgjöld ríkisins vegna samninganna nánast þau sömu í lok samningstímans (á föstu verðlagi) og þau eru nú. Fjárhæðir í rammasamningi nema kr. 1.743 milljónum árið 2017 en enda í kr. 1.516 milljónum árið 2026 við lok samnings.
Nautgriparæktarsamningur er á fyrsta ári 6.550 milljónir króna og endar í 6.138 milljónum árið 2026. Sauðfjárræktarsamningur nemur 4.932 milljónum króna árið 2017 en endar í 4.470 milljónum árið 2026. Garðyrkjusamningur er að verðmæti 551 milljón króna árið 2017 en við lok samningstíma árið 2026 nemur stuðningur við garðyrkjuna 533 milljónum króna. Verðtryggingarákvæði eru í samningunum og sömuleiðis ákvæði um tvær endurskoðanir á tímabilinu.