Aukin löggæsla hér á landi er afar brýn að mati fjölmiðlakvennana Steingerðar Steinarsdóttur, ritstjóra Vikunnar og Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur, fyrrverandi fréttastjóra Fréttatímans, en hún þarf hins vegar ekki að kalla á aukinn vopnaburð. Þáttinn er hægt að sjá hér á vef stöðvarinnar.
Þær stöllur eru sammála um að afar erfitt sé að meta þörfina á auknum aðgerðum lögreglunnar vegna hryðjuverka eða annarrar skipulagðrar glæpastarfsemi, alþjóðlegrar jafnt sem innlendrar, en óneitanlega veki nýlegir atburðir í undirheimum fólk til umhugsunar í þessum efnum.
Meðal annarra umræðuefna þáttarins er dýrasta land í heimi, sem þær Steingerður og Þóra Kristín ætla að Íslendingar séu stoltir af, rétt eins og því að vera hamingjuríkasta samfélagið á jörðinni og það sem notar mest af þunglyndislyfjum!
Pólitíkin heima og erlendis fær sitt pláss í þættinum, einkum sú mikla hreyfing sem er á fylginu, svo mjög reyndar að skoðanakannanir eiga orðið erfitt með að greina hana.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.