Háskóli Íslands mun ráða tvo sálfræðinga við Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands og mynda geðheilbrigðisteymi sem hefur yfirsýn og þróar geðheilbrigðisþjónustu við skólann. Í teyminu sitja námsráðgjafar, sálfræðingar, geðlæknar og fulltrúar stúdenta. Með þessu vill skólinn bregðast við ákalli stúdenta um aukna þjónustu á þessu sviði.
„Þessi niðurstaða er ein skýrasta mynd þess hversu áhrifarík og mikilvæg hagsmunabarátta stúdenta er og að hlustað sé á raddir stúdenta í Háskóla Íslands. Ég fagna samvinnu háskólans og stúdenta og er vongóð um áframhaldandi farsælt samstarf,“ segir Elísabet Brynjarsdóttir, forseti Stúdentaráðs Háskólans.
Mikil umræða hefur verið um geðheilsu ungs fólks að undanförnu sem m.a. má rekja til ýmissa herferða á samfélagsmiðlum og víðar.
Nú þegar er starfandi sálfræðingur í hálfu starfi hjá Náms- og starfsráðgjöf Háskólans. Sálfræðingurinn hefur bæði veitt einstaklingsviðtöl og sinnt námskeiðahaldi og fræðslu fyrir stúdenta um streitustjórnun og sjálfstyrkingu og í samstarfi við sérþjálfaða starfsmenn náms- og starfsráðgjar staðið fyrir prófkvíðanámskeiðum reglulega.
Auk þessa veita starfsmenn Náms- og starfsráðgjafar á hverjum degi fjölbreyttum hópi nemenda stuðning við úrlausn margvíslegra mála sem hvíla á þeim. Hátt í 3200 einstaklingar nýttu sér ráðgjöfina og voru heimsóknir rúmlega 5600.