Benedikt Jóhannesson og Dagur B. Eggertsson undirrituðu viljayfirlýsingu um aukið framboð byggingalóða. Unnið skal eftir þessari viljayfirlýsingu um sameiginlega þróun og skipulag á lóðum og löndum í Reykjavík sem ýmist eru í eigu eða í umráðum ríkissjóðs Íslands með það að markmiði að auka til mikilla muna framboð byggingarlóða.
Komist allar spildur í uppbyggingu gætu byggst um ellefu hundruð íbúðir auk mögulegrar uppbyggingar til viðbótar við núverandi áætlanir í landi Keldna sem að lágmarki gæti bætt við um níu hundruð íbúðum.
Auk Keldna í Keldnaholti falla eftirfarandi lóðir undir þessa viljayfirlýsingu: Landhelgissgæslulóð við Seljaveg; Lóð Borgarspítala; Lóð Listaháskóla við Laugarnesveg 91; Lóð Sjómannaskóla við Háteigsveg; Veðurstofureitur; Svæði við Þórsgötu og Þorragötu; Lóð við hlið Þjóðarbókhlöðu.
Aðkoma ríkisins mun helgast af því viðhorfi að eðlilegt matsverð eða markaðsverð fáist fyrir þær eigur ríkisins sem falla undir þessa viljayfirlýsingu. Þá skal skoða kaup borgarinnar á lóð í eigu ríkissjóðs við Skerjafjörð.
rtá
Nánar www.stjornarrad.is