Aukafundur á alþingi í dag vegna þriðja orkupakkans – atkvæðagreiðsla á mánudag

Í dag hefst aukafundur á Alþingi að loknu sumarleyfi, þar sem síðari umræða um innleiðingu þriðja orkupakkans mun fara fram. Fundurinn var settur sérstaklega á dagskrá með það fyrir augum að ljúka umræðum um orkupakkann. RÚV greinir frá.

Umræður munu fara fram í dag og á morgun og áætlað er að atkvæðagreiðsla fari fram eftir helgi, mánudaginn 2. september. Þar verða greidd atkvæði um öll málin sem tengjast þriðja orkupakkanum og innleiðingin afgreidd frá Alþingi með þingsályktun, þó með fyrirvörum sem slegnir hafa verið um stöðu Íslands.

Í upphafi sumars þegar þingflokkar gerðu samkomulag um þinglok var þessi málamiðlun gerð og breytingar gerðar á venjulegri dagskrá þingsins. Því telst þessi þingfundur til aukafundar. Í undirrituðu samkomulagi hefur Miðflokkurinn heitið því að tefja ekki umræður á þessum aukafundum í dag, á morgun og á mánudaginn.

Umræðurnar um þriðja orkupakkann eru þegar orðnar þær lengstu í sögu Alþingis og málþóf þingmanna Miðflokksins vegna málsins vel þekkt. Fyrstu sjö ræðumenn á mælendaskrá í dag eru einmitt sjö af níu þingmönnum Miðflokksins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, hefur flutt flestar ræður um orkupakkann og flytur í dag sína 45. ræðu í umræðunum.